Fréttir
Frá heimsókn heilbrigðisráðherra. Frá vinstri: Sigríður Haraldsdóttir, Lísa Kristjánsdóttir, Þórarinn Gunnarsson, Geir Gunnlaugsson, Álfheiður Ingadóttir og Sveinn Magnússon á skrifstofu Sigríðar.
22.02.2010
Heilbrigðisráðherra heimsækir Landlæknisembættið
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra heimsótti Landlæknisembættið 17. febrúar síðastliðinn ásamt nokkrum embættismönnum ráðuneytisins. Með heimsókninni vildi ráðherra kynna sér starfsemi embættisins og ræða jafnt við starfsmenn og stjórnendur.
Ráðherra kom í heimsóknina ásamt aðstoðarmanni sínum, Lísu Kristjánsdóttur, Berglindi Ásgeirsdóttur ráðuneytisstjóra og Sveini Magnússyni yfirlækni. Gengu þau í fylgd landlæknis um húsakynni embættisins og heilsuðu upp á alla starfsmenn þar sem þeir sátu við störf sín. Ráðherra átti spjall við hvern og einn og forvitnaðist um helstu verkefni þeirra en að því búnu var sest til fundar með framkvæmdastjórn Landlæknisembættisins. Þar fékk ráðherra stutta kynningu á skipulagi og störfum embættisins.
Starfsmenn embættisins voru ánægðir með að fá þetta tækifæri til að segja gestunum frá sínum daglegu störfum og ráðherra þakkaði seinna fyrir einstaklega ánægjulega og fræðandi heimsókn.
Heimsókn heilbrigðisráðherra til Landlæknisembættisins kom í kjölfar sambærilegrar heimsóknar til Lýðheilsustöðvar og má því líta á hana sem lið í undirbúningi að sameiningu stofnananna sem fyrirhuguð er á þessu ári.
Geir Gunnlaugson
landlæknir
til baka
Fréttasafn
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní.
2009
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2008

2007

2006

2005

2004

2003

2002

2001

2000
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.