Fréttir
01.03.2010
Hættan er ljós: Ungt fólk á ekki að fara í ljósabekki
Nú er að hefjast átak sem beinist að fermingarbörnum og forráðamönnum þeirra þar sem bent er á hættuna sem fylgir því að ungt fólk fari í ljósabekki. Skilaboðin eru frá Félagi íslenskra húðlækna, Geislavörnum ríkisins, Krabbameinsfélaginu, Landlæknisembættinu og Lýðheilsustöð. Þetta er sjöunda árið sem farið er í fræðsluherferð undir slagorðinu „Hættan er ljós“. Birtar verða auglýsingar í dagblöðum og á vefsíðum, m.a. Facebook, og fjallað um málið í fjölmiðlum.
Vakin er athygli á því að börn og unglingar séu næmari en aðrir fyrir skaðlegum áhrifum geislunar frá ljósabekkjum og sól. Tíðni húðkrabbameins hefur aukist mikið á síðustu áratugum, einkum tíðni svonefndra sortuæxla, en þau eru alvarlegasta tegund húðkrabbameins og algengasta tegund krabbameins hjá konum á aldrinum frá 15 til 34 ára.
Foreldrar og aðrir forráðamenn fermingarbarna eru hvattir til að fara að tilmælum alþjóðastofnana um að börn og unglingar fari ekki í ljósabekki. Nýlega hafa verið settar fram tillögur á norrænum vettvangi um að banna þeim sem eru yngri en átján ára að fara í ljós. Slíkt bann hefur þegar tekið gildi í nokkrum löndum, m.a. Skotlandi.
Í kjölfar fræðsluherferðanna síðustu ár hefur dregið úr ljósabekkjanotkun ungs fólks og nokkrar sveitarstjórnir hafa hætt að bjóða upp á sólböð í ljósabekkjum í íþróttamannvirkjum sínum. Með herferðinni er stefnt að því að draga enn frekar úr ljósabekkjanotkuninni. Leitað verður til presta landsins um að leggja málefninu lið, eins og undanfarin ár.
Nú er að koma út fræðslurit um sortuæxli. Krabbameinsfélagið gefur ritið út en höfundar eru læknarnir Bárður Sigurgeirsson og Jón Hjaltalín Ólafsson.
Samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsskránni greinast að meðaltali 50 manns á ári með sortuæxli í húð. Auk þess greinast um 280 einstaklingar árlega með önnur æxli í húð. Á allra síðustu árum hefur heldur dregið úr tíðninni. Ár hvert deyja að meðaltali níu Íslendingar úr sortuæxlum í húð.
Matthías Halldórsson
aðstoðarlandlæknir
til baka
Fréttasafn
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní.
2009
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2008
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2007
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2006
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2005
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2004
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2003
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2002
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2001
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2000
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.