Fréttir

08.03.2010

CTD – Algengur sjúkdómur meðal Færeyinga

Landlæknisembættið hefur að undanförnu fengið fjölmargar fyrirspurnir vegna sjúkdómsins CTD (Carnitine Transporter Defect), sem er arfgengur efnaskiptasjúkdómur í Færeyjum. Talið er að um það bil einn af hverjum 1000 Færeyingum fái sjúkdóminn. Annars staðar er hann mun sjaldgæfari og aðeins er vitað um eitt tilvik á Íslandi, en frá árinu 2008 eru nýfædd börn skimuð fyrir sjúkdómnum hér á landi.

Í Færeyjum hefur verið ráðlagt að skima fyrir þessum sjúkdómi óháð einkennum. Er það gert með einföldu blóðprófi. Frændur okkar Færeyingar eru allmargir hér á landi auk Íslendinga sem eru Færeyingar að hluta. Vinnuregla hefur verið að bjóða þeim sem eru Færeyingar í báðar ættir prófið en meta önnur tilvik hvert fyrir sig. Gjald er almennt blóðtökugjald (um 1600 krónur), auk viðtalsgjalds.

  Nánari upplýsingar, einkum ætlaðar heilbrigðisstarfsmönnum


Matthías Halldórsson
aðstoðarlandlæknir


til baka



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli