Fréttir
11.03.2010
Nýjar útgáfur flokkunarkerfanna ICD-10, NCSP og NCSP-IS
Landlæknisembættið hefur gefið út á vef sínum nýja útgáfu af Alþjóðlegu flokkunarkerfi sjúkdóma og skyldra heilbrigðisvandamála (ICD-10), Norrænni flokkun aðferða og aðgerða í skurðlækningum (NCSP) og landsútgáfu af Norrænni flokkun aðferða og aðgerða í skurðlækningum (NCSP-IS) fyrir árið 2010 og taka þær gildi nú þegar.
ICD-10
ICD-10, útgáfa 2010, inniheldur 14,595 kóða og voru 29 kóðar gerðir óvirkir nú en 88 nýir bættust við. Uppfærslur flokkunarkerfisins ICD-10 fylgja fyrirmælum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) og í ár taka gildi bæði allar stærri breytingar ársins 2009 og viðbótarbreytingar sem áður höfðu verið samþykktar fyrir gildistöku 2010. Breytingar verða til dæmis á skráningu illkynja æxla í eitil-, blóðmyndandi og skyldum vef, skilgreiningum á tímasetningum við skráningu kransæðastíflu og ný greiningarskilmerki taka gildi fyrir flokkun á sjóndepru og blindu.
Sjá nánar um uppfærsluna á vefsíðunni ICD-10 2010.
NCSP
NCSP útgáfa 2010 samanstendur af 8,276 kóðum og bættust 93 nýir við að þessu sinni en 25 kóðar voru gerðir óvirkir. Áberandi eru breytingar á skráningu skurðaðgerða á augum í þessari uppfærslu.
Sjá nánar um uppfærsluna á vefsíðunni NCSP 2010.
NCSP-IS
NCSP-IS útgáfa 2010 samanstendur af 10,793 kóðum og bættist 61 nýr kóði við að þessu sinni. Þróun þessa kerfis til framtíðar, nýting þess og notagildi er í endurskoðun hjá Landlæknisembættinu í samráði við þær stofnanir sem hafa tekið það upp. Aðilar sem ekki hafa tekið kerfið upp nú þegar er ráðið frá því að gera það að svo stöddu, án samráðs við heilbrigðistölfræðisvið Landlæknisembættisins.
Sjá nánar um uppfærsluna á vefsíðunni NCSP-IS 2010.
Rétt er að minna á að í tilmælum landlæknis um lágmarksskráningu í heilbrigðisþjónustu er mælt fyrir um að rafrænt birtingarform flokkunarkerfa sýni skýringar til að styðja rétta skráningu. Er unnið að því að birta öll flokkunarkerfi á vef embættisins www.skafl.is með tæmandi skýringartextum og eru þessar nýju útgáfur þar nú þegar, auk þess sem skrárnar eru birtar á sérstökum síðum fyrir hvert flokkunarkerfi á vef embættisins.
Þau sem vilja fá tilkynningu um uppfærslur flokkunarkerfa á vefnum geta skráð sig á póstlista Landlæknisembættisins en öðrum fyrirspurnum og ábendingum má gjarnan vísa til verkefnisstjóra flokkunarkerfa.
verkefnisstjóri flokkunarkerfa,
heilbrigðistölfræðisviði
til baka
Fréttasafn
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní.
2009
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2008
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2007
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2006
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2005
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2004
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2003
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2002
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2001
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2000
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.