Fréttir


11.03.2010

Skýrsla Fæðingaskrár fyrir árið 2008

Fæðingaskrá Íslands hefur gefið út ársskýrslu ársins 2008. Í henni eru ítarlegar tölulegar upplýsingar og umfjöllun um fæðingar á öllu landinu árið 2008, en það ár fæddust 4846 lifandi börn á Íslandi.

Landlæknisembættið er ábyrgðaraðili Fæðingaskrár en kvennadeild Landspítala er vinnsluaðili.

Í kjölfarið hefur Landlæknisembættið uppfært töflur með ársyfirliti um barnsfæðingar á Íslandi og um fjölda keisaraskurða. Töflurnar má skoða á vefsíðunni Tölur um fæðingar.

Fæðingar árið 2009
Í nýju tölunum kemur fram að árið 2009 voru fæðingar á Íslandi 4939 og fjöldi barna var 5014, þar af 4993 lifandi fædd. Fjölgun hefur orðið á fæðingum, þó hefur fæðingartíðni (fæðingar pr. 1000 íbúa) á landinu ekki aukist.

Að auki hefur verið bætt við töflum til að gefa betra yfirlit yfir fæðingar á tilteknum tímabilum. Þar má t.d. sjá yfirlit yfir fjölda heimafæðinga síðustu ár.

Lilja Bjarklind Kjartansdóttir


til baka



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli