Fréttir

12.03.2010

Undirbúningur hafinn að sameiningu Landlæknisembættisins og Lýðheilsustöðvar

Á vef heilbrigðisráðuneytisins hefur verið tilkynnt að undirbúningur sé hafinn að sameiningu Landlæknisembættis og Lýðheilsustöðvar. Undirbúningshópur, sem vinna mun að sameiningunni, fundaði í fyrsta sinn í heilbrigðisráðuneytinu þriðjudaginn 9. mars síðastliðinn.

Verkstjórn í sameiningarferlinu verður í höndum Margrétar Björnsdóttur, setts forstjóra Lýðheilsustöðvar, og mun hún leiða þá vinnu sem framundan er í samráði við Geir Gunnlaugsson landlækni og starfsmenn heilbrigðisráðuneytisins.

Sameiningin er í samræmi við tillögu starfsnefndar um breytta skipan stjórnsýslu heilbrigðisráðuneytisins, sem skilaði skýrslu í janúar 2010. Stefnt er að því að ný stofnun taki til starfa 1. janúar 2011.

Geir Gunnlaugsson
landlæknir


til baka



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli