Bólusetningar fullorðinna

Bólusetningar  fullorðinna eru mikilvægar til að viðhalda árangri ungbarnabólusetningar og einnig koma til álita aðrar bólusetningar sem vitað er að eru þjóðhagslega hagkvæmar. Í töflu hér fyrir neðan eru taldar upp þær bólusetningar sem mælt er með að fullorðnum sé boðið upp á.

Það ber að taka fram að ekki er ástæða til þess að endurtaka barnabólusetningar hjá fullorðnum nema þegar þeir fara á svæði þar sem þeir sjúkdómar sem bólusetja skal gegn eru landlægir eða þeir í sérstakri áhættu. Þá er almenna reglan sú að séu liðin meira en 10 ár frá barnabólusetningum gegn stífkrampa og barnaveiki skal gefa örvunarskammt.

Bólusetningar fyrir fullorðna sem mælt er með á Íslandi:


Bólusetningar

 


Hve oft?

 


Hverjir?

Inflúensa

Árlega

Allir eldri en 60 ára sem og börn og fullorðnir, sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna-, og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum. Einnig heilbrigðisstarfsmenn sem annast sjúklinga.

 

Lifrarbólga A

Ekki þörf á endurbólu-setningu

Allir þeir, sem hyggja á ferðalög til landa, þar sem sjúkdómurinn er landlægur. Samkynhneigðir karlar. Fíkniefnaneytendur.

 

Lifrarbólga B

Ekki þörf á endurbólu-setningu

Heilbrigðisstarfsfólk, sem vinnur með blóð og blóðhluta, fólk í blóðskilun, fólk er þarf tíðar blóðgjafir, samkynhneigðir karlar, sprautuefnafíklar og fólk í sambýli með sjúklingum með lifrarbólgu B.

 

Mislingar

 

Allir, sem ekki hafa verið bólusettir (reglulegar almennar bólusetningar hófust 1976) og allir, sem ekki hafa með vissu fengið mislinga.

 

Mænusótt

Á 10 ára fresti
(ef hætta er á smiti)

Ef liðin eru meir 10 ár frá síðustu bólusetningu er æskilegt endurtaka hana ef smithætta er fyrir hendi eins og fyrir ferðir til landa þar sem sjúkdómurinn er landlægur.

 

Pneumókokka-sýkingar
(lungnabólgu-bakteríur)

Á 10 ára fresti
(á 5 ára fresti
hjá fólki með
ónæmisbælandi
sjúkdóma)

Allir eldri en 60 ára. Einnig fólk á öllum aldri, sem er án milta vegna sjúkdóms eða slyss, og allir þeir sem þjást af langvinnum lungna-, hjarta-, nýrna-, og lifrarsjúkdómum, sykursýki, áfengissýki, illkynja og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum (þ.m.t. HIV sýkingu).

 

Stífkrampi og
barnaveiki (dT)

Á 10 ára fresti
(ef hætta er á smiti)

Ef liðin eru meir en 10 ár frá síðustu bólusetningu ber að endurtaka hana ef óhreinindi komast í sár eða ef ætlunin er að ferðast til vanþróaðra landa eða til svæða þar sem barnaveiki er landlæg.

Sjá einnig síðuna Upplýsingar fyrir heilbrigðisstarfsfólk

Skráð bóluefni á Íslandi
Í sérlyfjaskrá má fá ítarlegar upplýsingar um öll skráð bóluefni á Íslandi (lyfjaflokkur J07).

 

Uppfært 18. mars 2009


 

Bólusetning





Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli