Fæðingar - tölur
Fæðingaskrá hefur verið haldin á kvennasviði Landspítala-háskólasjúkrahúss síðan 1972 en fram að þeim tíma voru allar fæðingatilkynningar sendar landlækni. Við hverja fæðingu er fyllt út eyðublað og upplýsingar sendar Fæðingaskrá og þjóðskrá. Í Fæðingaskrá eru skráð ýmis fæðingafræðileg atriði og hefur ársskýrsla verið gefin út síðan 1995.
Árið 2009 fæddust 5014 börn, þar af 4993 lifandi fæddir, í 4939 fæðingum samkvæmt Fæðingaskrá og er það svipaður fjöldi fæðinga og verið hefur síðustu árin. Flestar fæðingar voru á Landspítala-háskólasjúkrahúsi eða um 70% en næst flestar á Sjúkrahúsinu á Akureyri eða um 10% fæðinga. Heimafæðingar voru 89. Fæðingatíðni byggir á tvennu, annars vegar fjölda kvenna á barneignaraldri og hins vegar á földa barna, sem hver kona eignast á ævinni. Frjósemi og fjölgunarhlutfall kvenna hér á landi hefur lækkað um helming frá því um 1960 þegar það var hvað hæst. Þá eignaðist hver kona að meðaltali fjögur börn á ævinni en árið 2008 var talan komin í 2,1. Tölur um fæðingartíðni má einnig finna á vef Hagstofunnar.
Uppfært 5. maí 2010
Updated 5 May 2010
Tölur um fæðingarStatistics on births