Fréttir

08.10.2008

Hugum að velferð barna

Íslendingar standa nú á miklum tímamótum sem hafa víðtæk áhrif á unga sem aldna. Mikilvægt er að huga sérstaklega að velferð barna og unglinga á þessum tímum.

Höfum í huga:

  • Jákvæð samvera barna með fjölskyldunni skapar öryggi.

  • Börnin þurfa að finna að á þau sé hlustað og að þeirra nánustu séu ekki í hættu.

  • Höldum fjölskylduvenjum og festu þó að mikið gangi á í samfélaginu.

  • Notum matartíma fjölskyldunnar til að sinna þörfum barnanna fyrir jákvæða athygli.

  • Ræðum á yfirvegaðan hátt að fjármálakreppan er tímabundin.

  • Útskýrum fyrir börnunum að framtíðin er björt þótt á móti blási í dag.

  • Verum góð fyrirmynd þegar kemur að vanda og lausnum.

  • Styðjum börnin til þess að takast á við mótlæti á uppbyggjandi hátt.

  • Hlúum vel að þeim sem okkur þykir vænt um.

Verum þess minnug að hér er um tímabundna erfiðleika að ræða sem við Íslendingar munum vinna okkur í gegnum. Miklu máli skiptir að við tökumst á við þessa erfiðleika þannig að við byggjum á styrkleikum okkar og leggjum áherslu á baráttugleði, bjartsýni og samkennd.

Landlæknir, Lýðheilsustöð, Umboðsmaður barna, Barnaverndarstofa,
Barna- og unglingageðdeild Landspítala–BUGL, Vinnueftirlitið, Heilbrigðismálaráðuneytið Menntamálaráðuneytið og Félagsmálaráðuneytið


  www.umhuga.is.
Upplýsingavefur um geðheilsu barna og unglinga


til baka



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli