Frétt eftir mánuðum

25.10.2007

Talnabrunnur – Nýtt fréttabréf um heilbrigðistölfræði

Í dag kemur út fyrsta tölublað nýs fréttabréfs á vegum Landlæknisembættisins sem fengið hefur heitið TALNABRUNNUR. Fréttabréf landlæknis um heilbrigðistölfræði. Í Talnabrunni verður fjallað um það sem fréttnæmt þykir um skráningu, söfnun, greiningu og túlkun heilbrigðisupplýsinga og skyld efni.
Lesa nánar

25.10.2007

Sigurður Guðmundsson landlæknir kominn aftur til starfa

Í dag tekur Sigurður Guðmundsson landlæknir aftur við starfi sínu eftir ársleyfi frá störfum. Hann hefur síðastliðið ár starfað í Malawi á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands.
Lesa nánar

19.10.2007

Bóluefni gegn H5N1 fuglaflensu keypt til landsins

Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa keypt bóluefni gegn H5N1 fuglaflensu. Þann 18.10.2007 undirritaði sóttvarnalæknir samning við GSK f.h. heilbrigðisyfirvalda sem tryggir að í landinu verði til 10.000 skammtar af H5N1 bóluefni til nota í mönnum.
Lesa nánar

Mynd með frétt
18.10.2007

Starfsafmæli og Velferðarkippur

Nýlega átti Hrefna Þorbjarnardóttir 25 ára starfsafmæli hjá Landlæknisembættinu og hefur hún lengstan starfsaldur þeirra sem nú starfa hjá embættinu. Hún er nú ritari gæða- og lýðheilsusviðs.
Lesa nánar

18.10.2007

Klínískar leiðbeiningar um skerta ökuhæfni vegna sjúkdóms eða öldrunar

Leiðbeiningar kanadísku læknasamtakanna (Canadian Medical Association) um skerta ökuhæfni í kjölfar sjúkdóms eða vegna öldrunar hafa fengið sess sem klínískar leiðbeiningar Landlæknisembættisins hvað varðar hinn læknisfræðilega þátt og eru þær aðgengilegar á vef embættisins.
Lesa nánar

17.10.2007

Áfengi – engin venjuleg neysluvara

Nú hefur enn á ný verið lagt fram frumvarp á Alþingi um breytingar á áfengislögum. Með frumvarpinu er lagt til að einkasala ÁTVR verði aflögð á öðru áfengi en því sem er með meiri vínandastyrk en 22%. Einnig er lagt til að áfengisgjald verði lækkað. Ljóst er að verði frumvarpið samþykkt mun aðgengi að áfengi aukast og einnig verður það ódýrara.
Lesa nánar

17.10.2007

Farsóttafréttir októbermánaðar komnar út

Tíunda tölublað þriðja árgangs Farsóttafrétta er komið út á vef Landlæknisembættisins. Í fréttabréfinu er að þessu sinni greint frá E. coli-sýkingu sem greinst hefur í átta tilfellum víðs vegar um land að undanförnu. Þá er sagt frá heimsókn þriggja fulltrúa frá Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins hingað til lands í síðustu viku og kaupum á bóluefni gegn fuglainflúensu.
Lesa nánar

9.10.2007

Alþjóðageðheilbrigðisdagurinn - þverfagleg ráðstefna í Ráðhúsi Reykjavíkur

Meginviðfangsefni Alþjóðageðheilbrigðisdagsins í ár eru þær áskoranir sem aukin alþjóðavæðing og menningarlegur margbreytileiki hafa í för með sér.
Lesa nánar

9.10.2007

Hvernig opnum við íslenska lyfjamarkaðinn? Málþing Rannsóknastofnunar um lyfjamál við Háskóla Íslands

Miðvikudaginn 10. október efnir Rannsóknastofnun um lyfjamál við Háskóla Íslands til málþings um lyfjastefnu á Íslandi og möguleika á að opna íslenska lyfjamarkaðinn.
Lesa nánar

5.10.2007

Sýkingar af völdum saurgerla (E. coli O157). Viðbótarupplýsingar.

Að gefnu tilefni skal tekið fram að engin ein sérstök matvara liggur undir grun um að vera menguð af saurgerlinum E. coli O157.
Lesa nánar

5.10.2007

Sýkingar af völdum saurgerla (E. coli O157).

Staðfest hafa verið fimm tilfelli af saurgerlasýkingu (E. coli O157).
Lesa nánar

2.10.2007

Grunur um misnotkun lyfja til að sljóvga fórnarlömb í nauðgunarmálum hefur ekki verið staðfestur hér á landi.

Nauðganir eru meðal svívirðilegustu ofbeldisverka sem framin eru og rétt að leita allra leiða tl að þess að koma í veg fyrir þær.
Lesa nánar




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli