Frétt eftir mánuðum

Mynd með frétt
31.5.2007

Hreint loft fyrir starfsfólk veitingastaða

Væntanlega hefur ekki farið fram hjá neinum að þann 1. júní nk. tekur gildi bann við reykingum inni á veitinga- og skemmtistöðum. Fjölmargir eigendur hafa nú þegar annaðhvort gert staði sína reyklausa eða takmarkað reykingar með ýmsu móti.
Lesa nánar

31.5.2007

Sumarið er tíminn

Samstarfshópurinn Náum áttum gengst fyrir morgunverðarfundi á Grand Hóteli í Reykjavík þriðjudaginn 5. júní næstkomandi, kl. 8.15 til 10.00. Efni fundarins er „Sumartíminn í lífi ungmenna“.
Lesa nánar

29.5.2007

Kaup á árlegu inflúensubóluefni

Samningar um kaup á árlegu inflúensubóluefni voru undirritaðir 10. maí síðastliðinn af sóttvarnalækni fyrir hönd heilbrigðisyfirvalda og fulltrúum GlaxoSmithKline (GSK) og Icepharma (Sanofi Pasteur MSD).
Lesa nánar

16.5.2007

Hildur Kristjánsdóttir ljósmóðir formaður Norðurlandasamtaka ljósmæðra

Á stjórnarfundi Norðurlandasamtaka ljósmæðra (Nordisk Jordmor Forbund, NJF), sem haldinn var í Turku í Finnlandi 2.– 3. maí, var Hildur Kristjánsdóttir ljósmóðir kjörin formaður Norðurlandasamtakanna. Það er í fyrsta sinn í 57 ára sögu samtakanna sem Íslendingur skipar það sæti.
Lesa nánar

16.5.2007

Reyklausir veitinga- og skemmtistaðir frá 1. júní

Frá og með 1. júní næstkomandi verða reykingar óheimilar á veitinga- og skemmtistöðum á Íslandi. Er hér tekið afar mikilvægt framfaraskref á sviði lýðheilsu, ekki síst út frá sjónarhorni vinnuverndar.
Lesa nánar

14.5.2007

Maítölublað Farsóttafrétta komið út

Á vef Landlæknisembættisins er komið út fimmta tölublað þriðja árgangs Farsóttafrétta. Blaðið fjallar að þessu sinni aðallega um nýlegar breytingar á sóttvarnalögum.
Lesa nánar

10.5.2007

Mannekla meðal sjúkraliða

Landlæknisembættið átti fund með forsvarsmönnum Sjúkraliðafélags Íslands þann 12. apríl síðastliðinn að ósk þeirra og var tilefnið nauðsyn þess að sjúkraliðar væru taldir með þegar fjallað er um manneklu í hjúkrun.
Lesa nánar

Mynd með frétt
9.5.2007

Landarnir taka þátt í átakinu „Hjólað í vinnuna“

Starfsmenn Landlæknisembættisins taka nú þátt í átakinu „Hjólað í vinnuna“. Skráð var lið tíu vaskra starfsmanna og gengur hópurinn undir nafninu Landarnir. Flestir hafa valið að hjóla til vinnu en aðrir ganga og hafa liðsmenn nú lagt rúma 400 km að baki.
Lesa nánar

8.5.2007

Blástur eða ekki blástur í endurlífgun

Umfjöllun um niðurstöður nýrrar japanskrar rannsóknar. Nýlega voru birtar niðurstöður japanskrar rannsóknar á árangri endurlífgunartilrauna utan spítala í tímaritinu Lancet. Fjallað var um niðurstöðurnar í Morgunblaðinu og á mbl.is og af þeirri umfjöllun mátti ráða að leiðbeiningum til almennings hefði verið breytt í kjölfar birtingar rannsóknarinnar.
Lesa nánar

Mynd með frétt
8.5.2007

Bóluefni gegn heimsfaraldri inflúensu

Þann 4. maí 2007 undirritaði Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra samning við GlaxoSmithKlein um kauptryggingu á 300.000 skömmtum af bóluefni gegn heimsfaraldri inflúensu. Samningur þessi er samhljóða samningi sem Danir hafa gert við lyfjafyrirtækið.
Lesa nánar

7.5.2007

Mismunun?

Í Blaðinu laugardaginn 5.maí sl. ber blaðamaður sig upp undan því að landlæknir mismuni fjölmiðlum. Tilefnið var að hann hafði komist að því hjá lýtalækni að landlæknir hefði óskað eftir upplýsingum um fjölda fegrunaraðgerða hjá lýtalæknum árið 2006.
Lesa nánar




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli