Frétt eftir mánuðum

30.12.2008

Salmonella í hrossum

Eins og fram hefur komið í fréttum hafa yfir 20 hross sem voru í hagagöngu við Esjurætur austan Mógilsár drepist af völdum Salmonellu typhimurium. Ekkert bendir til að sama salmonellutegund hafi greinst í mönnum.
Lesa nánar

29.12.2008

Áramót

Starfsfólk Landlæknisembættisins sendir landsmönnum öllum bestu árnaðaróskir og ósk um gæfu og gengi á komandi ári. Um leið er þakkað fyrir margháttuð og góð samskipti á árinu sem senn er liðið.
Lesa nánar

22.12.2008

Talnabrunnur er kominn á vefinn

Tólfta og síðasta tölublað annars árgangs af Talnabrunni – Fréttabréfi landlæknis um heilbrigðistölfræði er komið út á vef Landlæknisembættisins. Þar er fjallað um tölfræðilegar upplýsingar um fóstureyðingar á Norðurlöndum árið 2006.
Lesa nánar

16.12.2008

Farsóttafréttir eru komnar út

Tólfta og síðasta tölublað fjórða árgangs Farsóttafrétta er komið út á vef Landlæknisembættisins. Meðal efnis að þessu sinni er umfjöllun um nóróveirusýkingar, sem hefur fjölgað umtalsvert á þessu ári borið saman við árið 2007.
Lesa nánar

Mynd með frétt
10.12.2008

Stéttarfélög styrkja verkefnið Þjóð gegn þunglyndi

Efling-stéttarfélag hefur veitt forvarnarverkefninu Þjóð gegn þunglyndi einnar milljón króna styrk. Styrkurinn var afhentur við hátíðlega athöfn á fjölmennum fundi trúnaðarráða Verkalýðs- og sjómannafélagsins Boðans og Eflingar-stéttarfélags í gær, þann 9. desember.
Lesa nánar

10.12.2008

Klínískar leiðbeiningar um meðferð bráðrar miðeyrnabólgu

Á vef Landlæknisembættisins komu út klínískar leiðbeiningar um meðferð bráðrar miðeyrnabólgu þann 3. desember síðastliðinn. Stýrihópur embættisins um gerð klínískra leiðbeininga vann leiðbeiningarnar.
Lesa nánar

9.12.2008

Grunur um salmonellusmit

Eftirfarandi frétt birtist á heimasíðu Matvælastofnunar í samræmi við fréttatilkynningu frá Matfugli: „Grunur er um salmonellusmit í ferskum kjúklingum frá fyrirtækinu Matfugli ehf.
Lesa nánar

8.12.2008

Reglur um ökuleyfi og skipstjórnarréttindi einstaklinga með flogaveiki

Með dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 14/2008, sem gefið var út 31. október síðastliðinn, voru birtar reglur um ökuleyfi og skipstjórnarréttindi einstaklinga með flogaveiki.
Lesa nánar

5.12.2008

Alnæmissamtökin 20 ára

Í dag, 5. desember, fagna Alnæmissamtökin, HIV-Ísland, 20 ára afmæli sínu. Samtökin voru stofnuð fljótlega eftir að alnæmisfaraldurinn hóf innreið sína í íslenskt samfélag. Full ástæða er til að benda á mikilvægi samtakanna.
Lesa nánar

2.12.2008

Dreifibréf um meðferð lífsýna nr. 15/2008. Viðbótarupplýsingar

Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 15/2008, sem gefið var út 7. nóvember síðastliðinn, var sent til sjúkrahúsa, heilbrigðisstofnana, sérfræði- og læknastofa, heilsugæslustöðva og sjálfstætt starfandi heimilislækna með tilmælum um tiltekna meðferð lífsýna í því skyni að tryggja að lífsýni ruglist ekki.
Lesa nánar

1.12.2008

Nýtt heimilisfang ráðgjafar LSH vegna fjármálaáfalla

Aðsetur sálfræðiráðgjafar fyrir fólk með álagseinkenni vegna fjármálakreppunnar hefur verið flutt frá Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg og er nú til húsa að Eiríksgötu 5, 1. hæð E. Símanúmer ráðgjafarinnar er óbreytt, 458-9999. Ráðgjöfin er opin á virkum dögum frá kl. 9:00 til 16:00.
Lesa nánar




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli