Frétt eftir mánuðum

31.12.2009

Nýr landlæknir

Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað dr. Geir Gunnlaugsson prófessor landlækni frá 1. janúar næstkomandi, en fimm umsækjendur voru um stöðuna.
Lesa nánar

28.12.2009

HIV-sýkingum meðal fíkniefnaneytenda fjölgar

Í Farsóttafréttum þessa mánaðar er vakin athygli á því að af þeim 13 einstaklingum sem til þessa hafa greinst með HIV-sýkingu á árinu 2009 eru fimm Íslendingar með sögu um fíkniefnaneyslu með sprautunotkun í æð. Er það tæp 40% þeirra sem hafa greinst með HIV-sýkingu það sem af er árinu.
Lesa nánar

22.12.2009

Desembertölublað Talnabrunns er komið út

Talnabrunnur, fréttabréf landlæknis um heilbrigðistölfræði, er kominn út á vef embættisins. Greint er frá skýrslu OECD um heilbrigðisþjónustu, Health at a Glance 2009, OECD Indicators, sem kom út nýlega, og sagt frá bráðabirgðatölum um samskipti í heilsugæslunni á árinu 2008.
Lesa nánar

22.12.2009

Fræðslumynd um líffæragjafir á vefnum

Á vef Landlæknisembættisins hefur verið opnuð ný vefsíða um líffæragjafir. Á síðunni er hægt að opna og skoða fræðslumynd um líffæragjafir á Íslandi sem nefnist „Annað líf“ og var sýnd í Sjónvarpinu fyrir rúmu ári. Í myndinni er fjallað um fyrirkomulag líffæragjafa hér á landi.
Lesa nánar

21.12.2009

Farsóttafréttir eru komnar út

Á vef Landlæknisembættisins er komið út síðasta tölublað Farsóttafrétta á þessu ári. Í fréttabréfinu er að greint frá fjölda HIV-sýkinga á árinu 2009 og vaxandi fjölda fíkniefnaneytenda í hópi hinna sýktu. Þá er skýrt frá þróun svínainflúensunnar hér á landi, sem nú er í rénun, og áframhaldandi bólusetningum gegn henni.
Lesa nánar

11.12.2009

Nýrri sendingu bóluefnis gegn inflúensunni A(H1N1) dreift til heilsugæslustöðva eftir helgi

Ný sending bóluefnis gegn inflúensunni A(H1N1) berst heilsugæslustöðvum um land allt á mánudag og þriðjudag, 14. og 15. desember, og þá verður unnt að taka þráðinn upp að nýju og bólusetja fólk sem skráð hefur sig á biðlista.
Lesa nánar

10.12.2009

Klínískar leiðbeiningar um meðferð við langvinnum nýrnasjúkdómi

Á vef Landlæknisembættisins hafa verið gefin út drög klínískra leiðbeininga um greiningu, meðferð og eftirlit einstaklinga með langvinnan nýrnasjúkdóm. Leiðbeiningarnar samdi vinnuhópur á vegum embættisins.
Lesa nánar

10.12.2009

Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa

Mikið hefur dregið úr inflúensunni. Í síðustu viku (viku 49) greindist samtals 101 einstaklingur með inflúensulík einkenni samkvæmt skráningu heilbrigðisþjónustunnar.
Lesa nánar

9.12.2009

Útgáfa OECD-ritsins Health at a Glance 2009

Efnahags- og framfarastofnunin í París (OECD) gaf í gær út ritið „Health at a Glance 2009, OECD indicators“. Í ritinu má finna áhugaverðar og gagnlegar upplýsingar um heilbrigðismál í 30 aðildarríkjum stofnunarinnar.
Lesa nánar

9.12.2009

Skýrsla um almennt eftirlit Landlæknisembættisins og sérstakt eftirlit vegna efnhagsþrenginga

Á vef Landlæknisembættisins er komin út skýrsla um eftirlit embættisins með heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt lögum hefur Landlæknisembættið faglegt eftirlit með starfsemi heilbrigðisstofnana og heilbrigðisstarfsmanna.
Lesa nánar

Mynd með frétt
8.12.2009

Nýr heilsuvefur – fræðsla fyrir börn, unglinga og foreldra

Heilsuvefurinn www.6H.is hefur verið opnaður. Börn úr Fellaskóla opnuðu heilsuvefinn formlega við opnunarathöfn á Grand hóteli 27. nóvember síðastliðinn. Nafnið á vefnum vísar til sex hugtaka sem byrja öll á bókstafnum H.
Lesa nánar

8.12.2009

Kynlíf – heilbrigði, ást og erótík

Nýlega kom út bók eftir Jónu Ingibjörgu Jónsdóttur, hjúkrunarfræðing, kynfræðing og sérfræðing í klínískri kynfræði, en þau fræði fjalla um greiningu og meðferð kynlífsvandamála.
Lesa nánar

1.12.2009

Röskun á bólusetningu gegn svínainflúensu

Ítrekað er að þeir einstaklingar sem áttu von á að komast í bólusetningu gegn svínainflúensu á næstu dögum munu ekki komast í bólusetningu fyrr en eftir 15. desember. Ástæðan er seinkun á afhendingu bóluefnisins.
Lesa nánar

Mynd með frétt
1.12.2009

HIV-sýking og alnæmi á Íslandi - fíkniefnaneysla með sprautunotkun áhyggjuefni

Það sem af er þessu ári hafa 12 manns greinst með HIV-sýkingu á Íslandi. Af þeim eru fjórir karlmenn og átta konur. Enginn hefur greinst með alnæmi á lokastigi sjúkdómsins.
Lesa nánar




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli