Frétt eftir árum
21.12.2005
Endurskoðaðar útgáfur ICD-10 og NCSP-flokkunarkerfanna
Á vef Landlæknisembættisins eru komnar nýjar uppfærslur tveggja flokkunarkerfa sem notuð eru við skráningu í heilbrigðiskerfinu.Lesa nánar
14.12.2005
Hettusótt og bólusetning gegn henni
Vegna hettusóttarfaraldurs eru allir einstaklingar (konur og karlar) fæddir 1981 til og með 1985 hvattir til að leita til heilsugæslunnar og láta bólusetja sig með MMR-bóluefninu.Lesa nánar
9.12.2005
Farsóttafréttir eru komnar út
Á vef Landlæknisembættisins er komið út 11. tölublað Farsóttafrétta. Að þessu sinni er fjallað um hettusótt, en hettusóttartilfellum fjölgar enn hér á landi. Auk þess er greint frá tveimur æfingum í viðbrögðum við farsóttum á vegum Evrópusambandsins.Lesa nánar
8.12.2005
Verkefnisstjóri gæðaþróunar
Staða verkefnisstjóra gæðaþróunar hjá Landlæknis- embættinu er laus til umsóknar. Um er að ræða fullt starf.Lesa nánar
1.12.2005
Í dag er alþjóðlegur baráttudagur gegn alnæmi
Einkunnarorð og áhersla Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar fyrir árin 20052010 í baráttunni gegn alnæmi er: Stöndum við loforð okkar, stöðvum alnæmisfaraldurinn!Lesa nánar
29.11.2005
Breyting á lyfseðilsskyldu verkjalyfja hefur gengið vel fyrir sig
Eins og kunnugt er voru lyf sem innihalda kódein tekin úr lausasölu þann 1. október 2005 og voru þau gerð lyfseðilsskyld. Hér er einkum um að ræða lyfið Parkódín.Lesa nánar
18.11.2005
Ný útgáfa Leiðbeininga um getnaðarvarnir
Hjá Landlæknisembættinu er komin út ný og endurskoðuð útgáfa fræðslubæklings um getnaðarvarnir undir heitinu „Leiðbeiningar um getnaðarvarnir ? til að hjálpa þér að velja þá getnaðarvörn sem hentar þér best.?Lesa nánar
17.11.2005
Styrkur úr Jólagjafasjóði Guðmundar Andréssonar gullsmiðs
Ákveðið hefur verið að auglýsa til umsóknar styrki úr ofangreindum sjóði. Umsóknum skal skila eigi síðar en 9. desember 2005.Lesa nánar
15.11.2005
Áfallahjálp á landsvísu
Skýrsla um áfallahjálp á landsvísu var í dag afhent landlækni í húsnæði Landlæknisembættisins. Skýrslan er afrakstur vinnuþings undir yfirskriftinni „Áfallahjálp á landsvísu? sem haldið var í apríl á þessu ári.Lesa nánar
10.11.2005
Farsóttafréttir: Viðbúnaður við heimsfaraldri inflúensu
Tíunda tölublað Farsóttafrétta á þessu fyrsta útgáfuári er komið út. Fréttabréfið er helgað aðeins einu efni að þessu sinni, viðbúnaði og aðgerðum ríkisstjórnar og heilbrigðisyfirvalda vegna heimsfaraldurs inflúensu.Lesa nánar
9.11.2005
Flökkusaga um HIV-mengaðar nálar
Vakin skal athygli á að engar tilkynningar hafa borist sóttvarnalækni frá Frakklandi um að reynt sé að lauma HIV-menguðum nálum á staði sem geta valdið stunguáhöppun.Lesa nánar
31.10.2005
Áfengis- og vímuefnameðferð í fangelsum
Morgunverðarfundur um áfengis- og vímuefnameðferð í fangelsum verður haldinn á Grand Hótel í Reykjavík föstudaginn 4. nóvember 2005, frá kl. 08.00-10.00.Lesa nánar
27.10.2005
Klínískar leiðbeiningar um meltingarónot og tannvernd
Nýlega voru gefnar út á vef Landlæknisembættisins tvennar klíniskar leiðbeiningar, um greiningu og meðferð meltingarónota í heilsugæslu og um varnir gegn tannátu.Lesa nánar
19.10.2005
Áttunda norræna lýðheilsuráðstefnan í Reykjavík
Nýlega er afstaðin 8. norræna lýðheilsuráðstefnan sem haldin var á Hótel Nordica dagana 9.?11. október sl. undir yfirskriftinni „Lýðheilsa ? sameiginleg ábyrgð?. Ráðstefnuna sóttu um 250 manns, meirihluti þeirra frá hinum Norðurlöndunum.Lesa nánar
14.10.2005
Þvagleki og meðhöndlun hans í heilsugæslu
Vakin er athygli á að Landlæknisembættið hefur gefið út á vefsetrinu drög klínískra leiðbeininga um þvagleka og meðhöndlun hans í heilsugæslu.Lesa nánar
14.10.2005
Farsóttafréttir eru komnar út
Út er komið níunda tölublað fyrsta árgangs Farsóttafrétta. Í þetta skipti fjallar fréttabréfið einvörðungu um matareitranir, sem komu upp í septembermánuði síðastliðnum á mismunandi stöðum á landinu.Lesa nánar
13.10.2005
Fuglainflúensa greinist í Tyrklandi. Ráðleggingar til ferðamanna.
Vegna fjölda fyrirspurna skal tekið fram að ekki er mælt með neinum ferðatakmörkunum eða bólusetningum vegna fuglainflúensu sem geisað hefur í AsíuríkjunumLesa nánar
28.9.2005
Ráðstefna um geðheilbrigðismál 7. október 2005
Í tilefni alþjóðlega geðheilbrigðisdagsins verður haldin ráðstefna að Hótel Loftleiðum 7. október næstkomandi undir yfirskriftinni „Andlegt og líkamlegt heilbrigði.Lesa nánar
27.9.2005
Lausasölulyf sem innihalda kódein tekin úr umferð
Vinnuhópur á vegum Lyfjastofnunar og Landlæknisembættisins hefur lagt til að lausasölulyf sem innihalda kódein verði tekin úr umferð hér á landi. Frá 1. október verða þau einungis til samkvæmt lyfseðli. Er þetta gert til að sporna við morfín- og kódeinfíkn, sem hefur aukist undanfarin ár.Lesa nánar
22.9.2005
Lyf á biðlista
Í sjónvarpsfréttum í gær gerði fulltrúi Félags íslenskra stórkaupmanna lítið úr þeim óþægindum sem sjúklingar hafa orðið fyrir vegna þess að heildsalar hafa ekki átt skráð lyf á lager. Lét hann að því liggja að þetta væri einungis spurning um pakkningastærðir. Það er alrangt.Lesa nánar
15.9.2005
Farsóttafréttir, 7.- 8. tölublað
Sjöunda til áttunda tölublað Farsóttafrétta er komið út á vefsetri Landlæknisembættisins. Að þessu sinni er fjallað um hettusóttarfaraldur sumarið 2005, aukningu á lekandatilfellum og salmonellu hjá ferðamönnum erlendis.Lesa nánar
1.9.2005
Nýr yfirhjúkrunarfræðingur við Landlæknisembættið
Fyrir skemmstu lét Vilborg Ingólfsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur af störfum við Landlæknisembættið eftir langt og farsælt starf, sem hún mótaði frá byrjun. Hún hefur horfið til starfa í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu þar sem hún annast málefni aldraðra fyrir hönd ráðuneytisins. Vilborgu eru þökkuð vel unnin störf og óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi. Þann 1. september var Anna Björg Aradóttir hjúkrunarfræðingur ráðin í stöðu yfirhjúkrunarfræðings við embættið.Lesa nánar
8.8.2005
Forvarnir gegn byltum og beinbrotum aldraðra
Fyrir fáeinum dögum var kynnt könnun á slysum aldraðra árið 2003 sem byggð er á gögnum Slysaskrár Íslands og slysadeildar Landspítalans. Þar kom fram að flest slys á öldruðum urðu á eða við heimili þeirra.Lesa nánar
4.8.2005
Nýjar tölur um slys á öldruðum
Á vef Landlæknisembættisins er komin út skýrslan Slys á öldruðum 2003. Skýrslan er byggð á gögnum Slysaskrár Íslands og slysadeildar Landspítala-háskólasjúkrahúss.Lesa nánar
8.7.2005
Farsóttafréttir, 6. tölublað
Sjötta tölublað Farsóttafrétta er komið út á vefsetri Landlæknisembættisins. Að þessu sinni er fjallað um hettusótt, sem greinst hefur hér á landi nýlega, og marktæka aukningu á dánartíðni í upphafi þessa árs.Lesa nánar
4.7.2005
Bólusetningagrunnur sóttvarnalæknis
Lokið er verkefni sóttvarnalæknis um miðlæga bólusetningaskrá og var heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra afhent lokaskýrsla um verkefnið þann 28. júní 2005.Lesa nánar
30.6.2005
Norræn lýðheilsuráðstefna í Reykjavík
Dagana 9.11. október 2005 verður haldin 8. norræna lýðheilsusráðstefnan á Hótel Nordica við Suðurlandsbraut í Reykjavík undir yfirskriftinni „lýðheilsa sameiginleg ábyrgð.Lesa nánar
30.6.2005
Lífsskrá
Landlæknisembættið hefur látið útbúa svonefnda lífskrá, skjal sem greinir frá óskum fólks um meðferð við lífslok, geti það ekki sjálft tekið þátt í ákvörðunum um meðferðina vegna andlegs eða líkamlegs ástands.Lesa nánar
24.6.2005
Góðir starfshættir lækna
Landlæknisembættið hefur gefið út leiðbeiningar um góða starfshætti lækna og sent læknum. Þær lúta fyrst og fremst að atriðum í samskiptum lækna við sjúklinga, en öllu máli skiptir að þar ríki traust.Lesa nánar
22.6.2005
Sjálfsvígum karla fer fækkandi
Sjálfsvígum karla yngri en 24 ára fækkaði um meira en helming á árunum 20022004 borið saman við árin 19992001. Sjálfsvíg voru að meðaltali 13,8 á hverja 100.000 íbúa í þessum aldurshópi á síðustu þremur árum, en voru að meðaltali 29,6 á ári þrjú árin þar á undanLesa nánar
21.6.2005
Ráðleggingar um blöndun á þurrmjólk
Umhverfisstofnun og Landlæknisembættið vilja benda foreldrum, forráðamönnum, forstöðumönnum heilbrigðisstofnana og heilbrigðisstarfsfólki á að kynna sér vel ráðleggingarnar um blöndun á þurrmjólk.Lesa nánar
15.6.2005
Dreifibréf varðandi dauðsföll
Landlæknisembættið hefur nýlega sent frá sér dreifibréf varðandi dauðsföll.Lesa nánar
14.6.2005
Landlæknisembættið ? staða yfirhjúkrunarfræðings
Staða yfirhjúkrunarfræðings hjá Landlæknisembættinu er laus til umsóknar. Um er að ræða fullt starf.Lesa nánar
10.6.2005
Farsóttafréttir, 5. tölublað
Út er komið fimmta tölublað Farsóttafrétta á vefsetri Landlæknisembættisins. Meðal efnis að þessu sinni er umfjöllun um kampýlóbakter á Islandi og nóróveirusýkingar yfir sumarmánuðina.Lesa nánar
2.6.2005
Ársskýrsla Landlæknisembættisins 2004 er komin út
Í dag kemur út Ársskýrsla Landlæknisembættisins fyrir árið 2004. Í inngangi rekur landlæknir, Sigurður Guðmundsson, hvernig heilsufari landsmanna var háttað á árinu 2004 og hvar helst sé úrbóta þörf.Lesa nánar
30.5.2005
Sjúklingur með hermannaveiki á Landspítala
Að gefnu tilefni var ritstjóra DV sent svohljóðandi bréf eftir frétt blaðsins fimmtudaginn 26. maí síðastliðinn.Lesa nánar
27.5.2005
Um hermannaveiki
Eins og fram hefur komið fjölmiðlum greindist nýlega einstaklingur með hermannaveiki eftir ferðalag til Ítalíu og dvelur hann nú á Landspítala-háskólasjúkrahúsi. Allar líkur eru á að viðkomandi hafi smitast af veikinni á Ítalíu.Lesa nánar
26.5.2005
Enn um Rítalín
Í DV nýlega lét ritstjóri blaðsins, Jónas Kristjánsson, svo um mælt að landlæknir hefði einhverja „afskekkta rannsókn til stuðnings máli sínu þegar því væri haldið fram að Ritalín væri ekki ávanabindandi fyrir börnLesa nánar
25.5.2005
Ný alþjóðaheilbrigðisreglugerð (International Health Regulations)
Þann 23. maí síðastliðinn samþykkti Alþjóðaheilbrigðisþingið (World Heath Assembly, WHA) nýja alþjóðaheilbrigðis- reglugerð.Lesa nánar
10.5.2005
Meðferð ofvirkniröskunar
Umræður hafa orðið í fjölmiðlun að undanförnu vegna meintrar ofnotkunar lyfsins methylphenydats fyrir börn með ofvirkni/athyglisbrest í tilefni af fyrirspurn Ragnheiðar Ástu Jóhannesdóttur alþingismanns.Lesa nánar
10.5.2005
Farsóttafréttir, 4. tölublað.
Út er komið fjórða tölublað Farsóttafrétta á vefsetri Landlæknisembættisins. Meðal efnis að þessu sinni er umfjöllun um salmonellusýkingar á Islandi og höfuðlús.Lesa nánar
2.5.2005
Málþing um offituvandann
„Ofþyngd og offita frá fæðingu til fullorðinsára, orsakir og meðferð? er yfirskrift málþings sem verður haldið í hátíðasal Háskóla Íslands miðvikudaginn 4. maí næstkomandi, kl. 9:00 til 16:30.Lesa nánar
26.4.2005
Endurskoðun Lyfjastofnunar Evrópu á þunglyndislyfjum fyrir börn lokið
Í júní 2004 gaf Landlæknisembættið út dreifibréf vegna notkunar svokallaðra sérhæfðra serótónín - upptökuhemla (SSRI) hjá börnum og unglingum, en um er að ræða lyf við þunglyndi og einnig þráhyggju-árátturöskunLesa nánar
26.4.2005
Rimaapótek og Lyfjaver með ódýrustu lyfin
Alþýðusamband Íslands, í samráði við Samtök verslunar og þjónustu og Landlæknisembættið hefur látið gera kannanir á lyfseðilsskyldum lyfjum. Síðasta könnunin var gerð þann 20. apríl síðastliðinn.Lesa nánar
22.4.2005
Fósturskimun og fósturgreining á meðgöngu
Út eru komin drög að bæklingi hjá Landlæknisembættinu með heitinu „Fósturskimun og fósturgreining á meðgöngu. Honum er ætlað að upplýsa verðandi foreldra um rannsóknir sem bjóðast til skimunar og greiningar á fósturgöllum og meðfæddum sjúkdómum.Lesa nánar
19.4.2005
Áfallahjálp á landsvísu ? vinnuþing
Haldið verður vinnuþing um áfallahjálp á landsvísu í Safnaðarheimili Grensásskirkju fimmtudaginn 28. apríl næstkomandi, kl. 12:30?17:00, og föstudaginn 29. apríl, kl. 09:00?16:30.Lesa nánar
11.4.2005
Farsóttafréttir, 3. tölublað 2005
Út er komið þriðja tölublað Farsóttafrétta á vefsetri Landlæknisembættisins.Lesa nánar
11.4.2005
Ráðstefna um þjónustu við fanga
Landlæknisembættið, Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi, Heilbrigðis- og Tryggingamálaráðuneytið, Fangelsismálastofnun ríkisins og Velferðarsvið Reykjavíkuborgar boða til ráðstefnu um þjónustu við fanga á Hótel Örk í Hveragerði þann 15. apríl 2005.Lesa nánar
4.4.2005
Heilbrigði móður og barns í brennidepli
Næstkomandi fimmtudag, 7. apríl, er alþjóðaheilbrigðisdagurinn. Að þessu sinni beinir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin sjónum sínum að heilbrigði móður og barns.Lesa nánar
1.4.2005
Ráðleggingar til ferðamanna vegna fuglainflúensu í Asíu
Um þessar mundir geisar fuglainflúensa í fiðurfé í Asíu. Farsóttinni veldur inflúensuveira af A stofni (H5N1). Faraldurinn kom upp í Suður-Kóreu í desember 2003 og breiddist síðan út til Víetnam, Japans og Tælands,Lesa nánar
29.3.2005
Heilbrigð sál í hraustum líkama. Áhrif hreyfingar á andlega líðan.
Ráðstefna undir ofangreindri yfirskrift verður haldin á Hótel Loftleiðum 7. apríl næstkomandi, kl. 9:00?17:00. Að ráðstefnunni standa Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við menntamálaráðuneytið, Landlæknisembættið og Lýðheilsustöð.Lesa nánar
17.3.2005
Kvörtunum og kærum fjölgaði árið 2004
Vakin er athygli á nýjum upplýsingum á vefsetrinu um kvartanir og kærur sem bárust Landlæknisembættinu árið 2004. Alls bárust 244 kvartanir og kærur til embættisins í fyrra.Lesa nánar
16.3.2005
Umsóknarfrestur rennur út 21. mars nk.
Umsóknarfrestur um styrk úr Minningarsjóði Bergþóru Magnúsdóttur og Jakobs J. Bjarnasonar rennur út 21. mars 2005.Lesa nánar
14.3.2005
Upplýsingar um lífsýnasöfn sem fengið hafa starfsleyfi
Samkvæmt lögum um lífsýnasöfn nr.110/200 ber landlækni að gefa árlega út skrá um lífsýnasöfn sem fengið hafa starfsleyfi heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins.Lesa nánar
11.3.2005
Farsóttafréttir komnar út
Út er komið annað tölublað Farsóttafrétta á vef Landlæknisembættisins.Lesa nánar
3.3.2005
Póstkort til foreldra: Fermingarbörn eiga ekki að fara í ljós
Foreldrum og forráðamönnum fermingarbarna hefur verið sent póstkort þar sem bent er á hætturnar sem fylgja því að ungt fólk fari í ljósabekki.Lesa nánar
2.3.2005
Samræmi milli tóbaksvarnalaga og vinnuverndarlaga
Landlæknisembættið lýsir yfir eindregnum stuðningi við það frumvarp sem nú hefur verið lagt fram til breytingar á lögum um tóbaksvarnir.Lesa nánar
28.2.2005
Veggspjöldin Hjálparvana, Svartnætti og Vonleysi fengu íslensku auglýsingaverðlaunin 2005
Auglýsing á vegum Landlæknisembættisins hlaut Lúðurinn, íslensku auglýsingaverðlaunin, á hátíðadagskrá Ímark, félags íslensks markaðsfólks 25. febrúar síðastliðinn.Lesa nánar
22.2.2005
Gagnagrunnur sóttvarnalæknis um bólusetningar hlýtur verðlaun IcePro
Á aðalfundi IcePro í Reykjavík í dag afhenti Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra Þórólfi Guðnasyni, yfirlækni á sóttvarnasviði Landlæknisembættisins, verðlaun samtakanna.Lesa nánar
18.2.2005
Evrópska lyfjastofnunin varar enn frekar við nýju gigtarlyfjunum
Evrópska lyfjastofnunin ákvað í gær að gigtarlyfið Celebra og önnur lyf úr sama flokki, sem hér á landi eru Arcoxia, Bextra og Dynastat skuli merkt með sérstökum varúðarmerkingum.Lesa nánar
10.2.2005
Rannsóknarstyrkur úr Minningarsjóði Bergþóru Magnúsdóttur og Jakobs J. Bjarnasonar
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr ofangreindum sjóði.Lesa nánar
10.2.2005
112 dagurinn er á morgun, föstudaginn 11. febrúar
Neyð er frábrugðin daglegu lífi, þar sem m.a. heilsu, mannslífum eða eignum er ógnað. Undir slíkum kringumstæðum ber að hringja í Neyðarlínuna 112.Lesa nánar
10.2.2005
Nýtt fréttabréf hefur göngu sína
Nýtt fréttabréf á vegum sóttvarnalæknis, Farsóttafréttir, hefur nú göngu sína hjá Landlæknisembættinu. Ætlunin er að það komi framvegis út einu sinni i mánuði.Lesa nánar
28.1.2005
Ályktað um alheimsógn af völdum sýklalyfjaónæmis
Á fundi framkvæmdastjórnar Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinnar (WHO) í Genf 22. janúar síðastliðinn var einróma samþykkt ályktun vegna alheimsógnar af völdum sýkla sem eru ónæmir fyrir sýklalyfjumLesa nánar
25.1.2005
KB banki heldur áfram stuðningi við Þjóð gegn þunglyndi
Þann 8.desember síðastliðinn veitti KB banki verkefninu Þjóð gegn þunglyndi styrk að upphæð ein milljón króna til að halda áfram því forvarnarstarfi sem Landlæknisembættið hefur staðið fyrir undanfarin ár.Lesa nánar
25.1.2005
Nýjar tölur um fóstureyðingar
Út er komin skýrslan Fóstureyðingar 2003 hjá Landlæknisembættinu. Skýrslan er byggð á skrá embættisins um fóstureyðingar á Íslandi.Lesa nánar
24.1.2005
Ráðherrafundur Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um geðheilbrigði
Dagana 12.-15. janúar var haldin viðamikil ráðstefna á vegum Evrópudeildar WHO í Helsinki um geðheilsu. Einkunnarorð ráðstefnunnar lutu að nauðsyn þess að mæta vandamálum og starfa saman að lausnum þeirra.Lesa nánar
18.1.2005
Hegðunarvandi og geðraskanir barna og unglinga
Ráðstefna á vegum Barnaverndarstofu, Barna- og unglingadeildar LSH, Miðstöðvar heilsuverndar barna og Landlæknisembættisins verður haldin á Grand Hótel í Reykjavík dagana 3. og 4. febrúar 2005.Lesa nánar
3.1.2005
Til ferðamanna frá Suðaustur-Asíu
Tilkynning frá sóttvarnalækni til ferðamanna sem eru að koma heim til Íslands eftir dvöl á svæðum sem urðu fyrir barðinu á jarðskjálftanum í Indlandshafi og flóðbylgjunnar sem fylgdi í kjölfarið þann 26. desember sl.Lesa nánar
3.1.2005
Síðkomin áhrif flóðbylgjunnar miklu í Bengalflóa. Leiðbeiningar sóttvarnalæknis til heilbrigðisstarfsmanna
Bein áhrif jarðskjálftans á Indlandshafi og flóðbylgjunnar sem fylgdi í kjölfar hans á menn eru áverkar á sál og líkama.Lesa nánar
Fréttasafn
Fréttasafn
2010
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september.
2009
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2008
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2007
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2006
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2005
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2004
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2003
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2002
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2001
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2000
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september.
2009
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2008
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2007
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2006
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2005
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2004
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2003
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2002
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2001
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2000
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.