Hvert skal leita?

Hægt er að fara í mótefnapróf fyrir HIV/alnæmi á eftirtöldum stöðum:

  • Göngudeild húð- og kynsjúkdóma (LSH), Þverholti 18,
    105 Reykjavík, sími: 543 6050. Panta þarf tíma.
    Best er að hringja kl. 8:00 - 9:00 á morgnana eða fyrir klukkan 12:00.

  • Göngudeild smitsjúkdóma LSH, Fossvogi, 108 Reykjavík, sími: 543 2040.
    Panta þarf tíma.

  • Rannsóknastofu LSH, Fossvogi, sími: 543 5600. Hægt er að fá próf án þess
    að panta tíma alla virka daga kl. 8.00 - 18.00.

  • Heilsugæslustöðvum landsins.

Ráðgjöf, skoðun og meðferð við HIV/alnæmi og á kynsjúkdómum er þér að
kostnaðarlausu.

Önnur aðstoð
Á sóttvarnarsviði Landlæknisembættisins starfar yfirfélagsráðgjafi, Sigurlaug Hauksdóttir, sem sinnir m.a. forvörnum gegn kynsjúkdómum og útbreiðslu HIV/alnæmis og veitir ráðgjöf. Geta stofnanir, skólar, fyrirtæki, félög og aðrir staðir óskað eftir fyrirlestri eða fræðslu um þessi efni með því að hafa beint samband við hana með tölvupósti eða í síma. Einnig er hægt að beina til hennar spurningum um HIV/alnæmi, kynsjúkdóma og smokka. Tillögur og hugmyndir um vænlegar forvarnaleiðir eru vel þegnar.

Netfang: sigurlaug@landlaeknir.is, sími: 510 1900/ 510 1927.

5. desember 2007




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli