ICD-10 2010
ICD-10. Uppfærsla 2010
ICD-10, útgáfa 2010, samanstendur af 14,595 kóðum og voru 29 kóðar gerðir óvirkir nú en 88 nýir bættust við.
Uppfærslur flokkunarkerfisins ICD-10 fylgja fyrirmælum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. Í ár taka gildi bæði allar stærri breytingar ársins 2009 og viðbótarbreytingar sem áður höfðu verið samþykktar fyrir gildistöku 2010. Þetta hefur í för með sér meiri breytingar en verið hefur undanfarin ár.
Helstu breytingar
Víðtækar breytingar eru á skráningu illkynja æxla í eitil-, blóðmyndandi og skyldum vef (kóðaflokki C81-C96) og frumkomið rauðkornablæði (D45) fær stöðu illkynja æxlisvaxtar án breytinga á kóðanum.
Ný greiningarskilmerki taka gildi fyrir flokkun á alvarleika sjónsköddunar (kóði H54) og verða þau birt til að byrja með í sértöflu á vef embættisins, á ensku.
Breytingar verða í skilgreiningum á tímasetningum við skráningu kransæðastíflu og það hvenær endurtekið áfall á sér stað (sjá nánar í texta við I20-I25 og I22.-).
Ennfremur tekur gildi stigun á langvinnri nýrnabilun (N18) og alvarleika legusára (L89). Nýr kóði tekur einnig gildi fyrir frumubreytingar í blöðruhálskirtli, N42.3 Dysplasia of prostate.
Í greiningum fyrir fæðingarhjálp skýrast línur með breyttir kóðun fyrirmálshríða (O60), auk þess sem HELLP-heilkennið fær nú sérstakan kóða, O14.2. Einnig kemur til aukakóði R65 til skráningar bólgusóttar eða Systemic Inflammatory Response Syndrome.
Lýsingu á þessum og fleiri breytingum má sjá í samantekt yfir breytingar.
Einum séríslenskum kóða var bætt við til kóðunar á svínainflúensu, U05.9, en nú hefur WHO gefið fyrirmæli um að hún skuli kóðast sem J09 og verður það þá okkar opinberi kóði en U05.9 er áfram í gildi til innanlandsnota.
Kóðar fyrir fórnarlömb jarðskjálfta, X34, hafa tekið breytingum, þar sem fyrri kóðar X34.- þurfa allir að varpast í X34.9. Þetta stafar af því að í kafla W00 –X59, Aðrar ytri ástæður áverka, hafa skrárnar verið flattar út til að staðarauðkenni slyss sjáist í aukastaf. Þessu fyrirkomulagi þarf að breyta enda eru aukastafirnir .0-.9 skýrivísar.
ICD-10 er nú í annað sinn gefið út rafrænt, á íslensku og ensku með öllum tilheyrandi skýringartextum. Því er útgáfan á þrenns konar formi, styttri útgáfa á excel-formi, sem eins og áður hefur aðeins heiti kóða, lengri útgáfa á excel-formi með skýringartextum og loks gagnagrunnsform með skráarlýsingu til birtingar í hugbúnaði heilbrigðisstofnana.
Samantekt yfir breytingar er að finna í excelskránum, nýja kóða og ógilta, auk nýrra þýðinga. Þýðingum nýrra kóða er ekki að fullu lokið en fyrir nýja kóða er enski textinn tæmandi.
Rétt er að minna á að í fyrirmælum landlæknis um lágmarksskráningu í heilbrigðisþjónustu er mælt fyrir um að rafrænt birtingarform flokkunarkerfa sýni skýringar til að styðja rétta skráningu.
Uppfært 18. febrúar 2010