Fjölgun lekandatilfella
Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 12/2005
Tilkynning frá sóttvarnalækni
Efni: Fjölgun lekandatilfella
Síðastliðna þrjá mánuði hefur fjöldi greindra lekandatilfella farið vaxandi. Sóttvarnalæknir vill því hvetja lækna til að vera vakandi fyrir lekanda og senda sýni í ræktun við grun um sýkingu. Töluvert er um minnkað næmi fyrir penisillíni hjá nýlega greindum bakteríustofnum, en einnig er um minnkað næmi fyrir ciprofloxacini og tetracyclini að ræða.
Sóttvarnalæknir telur því ástæðu til að ítreka mikilvægi þess að senda sýni í lekandaræktun svo tryggja megi árangur meðferðar.
Nánar er greint frá fjölgun lekandatilfella í síðasta tölublaði Farsóttafrétta (nr. 7 - 8, ágúst - sept. 2005) sem nálgast má á heimasíðu Landlæknisembættisins (www.landlaeknir.is).
3. október 2005
Sóttvarnalæknir
Fylgiskjal: Leiðbeiningar við töku sýna fyrir lekandaræktun frá Sýklafræðideild Landspítala-háskólasjúkrahúss.
Sent yfirlæknum.
Afrit til heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins
Uppfært 28. nóvember 2008