Um embættið
|
|
Meginhlutverk embættisins er þríþætt, ráðgjöf, eftirlit og upplýsingasöfnun.
Lagaákvæði um hlutverk Landlæknisembættisins er að finna í lögum um landlækni en einnig í sóttvarnalögum og í lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007.
Skv. lögum um landlækni nr. 41/2007 eru hlutverk embættisins m.a. eftirfarandi:
-
Að veita ráðherra og öðrum stjórnvöldum, heilbrigðisstarfsfólki og almenningi ráðgjöf um heilbrigðismál.
-
Að hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsfólki.
-
Að hafa eftirlit með lyfjaávísunum og fylgjast með og stuðla að skynsamlegri lyfjanotkun landsmanna.
-
Að safna og vinna upplýsingar um heilsufar og heilbrigðisþjónustu.
-
Að fylgjast með heilbrigði landsmanna.
-
Að vinna að gæðaþróun innan heilbrigðisþjónustu.
-
Að sinna kvörtunum almennings vegna heilbrigðisþjónustu.
-
Að stuðla að því að menntun heilbrigðisstarfsmanna sé í samræmi við kröfur heilbrigðisþjónustunnar á hverjum tíma.
-
Að stuðla að rannsóknum á sviði heilbrigðisþjónustu.
Lesa nánar: Dreifibréf nr. 3/2008. Lög um landlækni nr. 41/2007.
Samkvæmt sóttvarnalögum nr. 19/1997 starfar sóttvarnalæknir við embættið. Hann ber ábyrgð á framkvæmd sóttvarna svo og á almennum og opinberum sóttvarnaráðstöfunum. Verksvið sóttvarnalæknis er aðallega eftirfarandi:
- Að skipuleggja og samræma sóttvarnir og ónæmisaðgerðir um land allt, m.a. með útgáfu leiðbeininga um viðbrögð við farsóttum.
- Að halda smitsjúkdómaskrá til að fylgjast með útbreiðslu smitsjúkdóma.
- Að halda skrá um notkun manna á sýklalyfjum sem valdið geta ónæmi sýkla gegn sýklalyfjum.
- Að koma á framfæri upplýsingum um útbreiðslu smitsjúkdóma, innanlands sem utan, til lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna.
- Að vera læknum og öðrum, sem við sóttvarnir fást, til ráðgjafar.
- Að hafa umsjón með forvörnum gegn smitsjúkdómum, m.a. með upplýsingum og fræðslu til almennings.
Uppfært 26. maí 2010