Erindi til embættis
Öll erindi sem þarfnast formlegrar afgreiðslu hjá embættinu, s.s. kvartanir eða kærur, þurfa að berast bréflega (þ.e. ekki með tölvupósti) og vera undirrituð með eigin hendi. Einnig þarf að koma fram kennitala og heimlisfang bréfritara.
Bréf má afhenda annaðhvort í afgreiðslu embættisins eða senda með pósti. Í samræmi við ákvæði stjórnsýslulaga eru öll formleg erindi afgreidd eins fljótt og unnt er.
Þegar erindi berast vegna kvartana eða kæra fær sendandi bréflega staðfestingu um að erindið hafi verið móttekið. Sjá nánar: Kvartanir og kærur
Óformlegri fyrirspurnir og beiðnir um upplýsingar má senda í tölvupósti á netfangið mottaka@landlaeknir.is. Þeim er þá beint til viðkomandi aðila innan embættisins og svarað í tölvupósti eins fljótt og kostur er svo sem stjórnsýslulög gera ráð fyrir.
Uppfært 10. mars 2009