Kynsjúkdómar
| |
Kynsjúkdómar valda oft litlum sem engum einkennum. Því er hægt að ganga með þá lengi og smita aðra án þess að vita af því. Algengustu sjúkdómseinkenni eru útferð, kláði og sviði við þvaglát. Sumir kynsjúkdómar valda sárum og vörtum á kynfærum. Aðrir kynsjúkdómar geta valdið varanlegum skaða ef rétt meðferð er ekki gefin fljótlega eftir smit. Ekki er til læknandi meðferð við öllum kynsjúkdómum, t.d. er HIV ólæknandi sjúkdómur sem kostar ævilanga meðferð sem getur valdið bagalegum aukaverkunum.
Smokkurinn er góð getnaðarvörn og sú eina sem getur komið í veg fyrir kynsjúkdóma. Mikilvægt er að hann sé notaður í hvert skipti, notaður allan tímann á meðan á kynmökum stendur og farið eftir leiðbeiningum hans í hvívetna. Ef minnsti grunur vaknar um kynsjúkdóm er nauðsynlegt að leita læknis. Próf og meðferð flestra kynsjúkdóma er ókeypis á heilsugæslunni og sjúkrahúsum.
Allt heilbrigðisstarfsfólk er bundið þagnarskyldu.
Yfirlit yfir einkenni helstu kynsjúkdóma hjá konum og körlum Eftirfarandi upplýsingar eru teknar úr bæklingnum Kynsjúkdómar sem kom út í 3. prentun og endurskoðaðri útgáfu 2012.- Lekandi
- Kynfæraáblástur
- Kynfæravörtur - HPV
- HIV/alnæmi (sjá ítarlegri upplýsingar í bæklingnum Staðreyndir um HIV og alnæmi sem kom út árið 2003)
- Lifrarbólga B
- Sárasótt
- Tríkómónas-sýking
- Flatlús
- Kláðamaur
- Smokkanotkun
- Kynsjúkdómaskoðun
- Greiningarstaðir og nánari upplýsingar (Ath. breytingar frá 1. útg., febrúar 2009)
Læknum ber skv. sóttvarnalögum skylda til að tilkynna sóttvarnalækni tilfelli ofangreindra smitsjúkdóma með persónuauðkennum hins smitaða. Tilgangur slíkra tilkynninga er að hindra útbreiðslu smits. Sjá meira undir Tilkynningaskyldir sjúkdómar.
Sjá einnig:Kynsjúkdómar – Smitleiðir, einkenni, meðferð, forvarnir (PDF, KB)
Ritstjórn: Sigurlaug Hauksdóttir. Útlit og myndir: Auglýsingastofa Þórhildar.
Embætti landlæknis - Sóttvarnalæknir. 3. prentun, endurskoðuð útgáfa 2012.
(Ath. Upplýsingar um greiningarstaði fyrir kynsjúkdómapróf eru breyttar frá 1. útg. 2009.)
Staðreyndir um HIV og alnæmi (PDF). Bæklingur gefinn út í september 2003.
Ath. breyttar upplýsingar í bæklingi um greiningarstaði fyrir kynsjúkdómapróf (sept. 2010)
Facts about HIV/AIDS.
Bæklingurinn var gefinn út á fimm erlendum tungumálum. Hægt er að skoða bæklinginn með því að smella á fána viðkomandi lands hér fyrir neðan.
| |
|
|
|
|
|
Frekari upplýsingar
Á sóttvarnarsviði Landlæknisembættisins starfar yfirfélagsráðgjafi, Sigurlaug Hauksdóttir, sem sinnir m.a. forvörnum gegn kynsjúkdómum og útbreiðslu HIV/alnæmis og veitir ráðgjöf. Geta stofnanir, skólar, fyrirtæki, félög og aðrir staðir óskað eftir fyrirlestri eða fræðslu um þessi efni með því að hafa beint samband við hana með tölvupósti eða í síma. Einnig er hægt að beina til hennar spurningum um HIV/alnæmi, kynsjúkdóma og smokka. Netfang: sigurlaug@landlaeknir.is, sími: 510 1900/ 510 1941.
Síðast breytt/uppfært 3. maí 2012