Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á hjúkrunarheimilið Silfurtún HVE Búðardal

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

08.05.2024

Umsóknarfrestur

21.05.2024

Sjúkraliði á hjúkrunarheimilið Silfurtún HVE Búðardal

Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE), hjúkrunarheimilið Silfurtún Búðardal óskar eftir að ráða sjúkraliða til starfa frá og með 1 sept 2024

Starfshlutfall er 50-80% og er ákveðið með deildarstjóra.

Um er að ræða þrískipta vaktavinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sjúkraliði ber ábyrgð á að veita skjólstæðingum sínum umönnun og hjúkrun í samræmi við markmið og stefnu hjúkrunar hjá stofnuninni.

Sjúkraliði ber ábyrgð á störfum sínum í samræmi við lög nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn og reglugerð nr. 511/2013 um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða og skilyrði til að hljóta starfsleyfi. Sjúkraliða og almennum starfsmanni ber að fylgja faglegum fyrirmælum næsta yfirmanns, og sinna störfum sínum af árvekni, trúmennsku og virðingu í samræmi við faglegar kröfur sem gerðar eru til starfsins á hverjum tíma.

Staðan felur í sér aðhlynningu á hjúkrunarheimilinu

Hæfniskröfur

Gerð er krafa um

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi.

  • Góða íslensku kunnáttu.

  • Góða hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Stundvísi, sjálfstæð vinnubrögð og faglegan metnað.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Með umsókn skal fylgja staðfest afrit af sjúkraliðaleyfi og námsmat frá SLFÍ ef við á.

Sótt er um á starfatorg.is

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 21.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Guðbjörg Arnardóttir, kristin.g.arnardottir@hve.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á hjúkrunarheimilið Silfurtún HVE Búðardal

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

08.05.2024

Umsóknarfrestur

21.05.2024