Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á Líknardeild Landspítala

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

08.05.2024

Umsóknarfrestur

23.05.2024

Hjúkrunarfræðingur á Líknardeild Landspítala

Hjúkrunarfræðingur óskast til fjölbreyttra og krefjandi starfa í fallegu umhverfi í Kópavogi. Á deildinni starfa um 60 einstaklingar og mikil áhersla er lögð á þverfaglega teymisvinnu. Starfsumhverfið einkennist að miklum faglegum metnaði og góðum starfsanda. Starfshlutfall er samkomulag og vinnufyrirkomulag vaktavinna, með möguleika á auknu umfangi næturvakta. Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.

Boðið er upp á fræðslu og starfsaðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum. Deildin er fyrir tímabundna innlögn sjúklinga með ólæknandi, langt genginn sjúkdóm og skertar lífslíkur. Markmiðið er að bæta lífsgæði sjúklinga og fjölskyldna þeirra. Á deildinni eru 12 legurými og er starfsemin byggð á hugmyndafræði líknarmeðferðar. Áhersla er lögð á fjölskylduhjúkrun og teymisvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hjúkrun, ráðgjöf og stuðningur til sjúklinga og aðstandenda

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Faglegur metnaður

  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna

Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Ólöf Ásdís Ólafsdóttir, olofao@landspitali.is

Sími: 824-1349

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á Líknardeild Landspítala

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

08.05.2024

Umsóknarfrestur

23.05.2024