Þjóð gegn þunglyndi
Fólk veikist oft af þunglyndi mitt í dagsins önn. Stundum er erfitt að greina það frá venjulegri óánægju, viðbrögðum við missi og sorg, eða kreppu í einkalífinu. Fyrstu kvartanir við lækni eru stundum um líkamlega þætti, eins og langvarandi þreytu eða slen, eða óljósa og breytilega verki. Með ítarlegum spurningum fæst þó yfirleitt alltaf örugg greining á sjúkdómnum. Greiningin er afar mikilvæg því að flestir þunglyndissjúklingar geta fengið áhrifaríka meðferð.
Þunglyndi hefur margvísleg einkenni, sem öll hafa í för með sér að draga úr lífsgleði og framtaki, lækka geðslag, hægja á hugsunum og atferli. Allt þetta dregur úr þreki einstaklings til að sinna daglegum skyldum, rækta fjölskyldu og vini.
Ef þunglyndið greinist ekki leiðir það til óþarfra þjáninga og viðvarandi röskunar á starfsgetu og lífsnautn. Þegar verst lætur getur þunglyndið stefnt lífi sjúklings í óefni, jafnvel sjálfsvígshættu.
Mikilvægt: Þunglyndi er engin „ímyndun", heldur algengur og stundum lífshættulegur sjúkdómur sem oftast er læknanlegur og alltaf er hægt að ráða einhverja bót á.
Landlæknisembættið hefur starfrækt verkefnið Þjóð gegn þunglyndi síðan vorið 2003. Er því nánar lýst á næstu vefsíðum og eru lesendur hvattir til að kynna sér efni þeirra. Þó að sumt höfði frekar til hins almenna lesenda og annað til fagfólks er efnið aðgengilegt og vonandi öllum til einhvers gagns.
Uppfært 1. febrúar 2011