Umsókn um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða 2024
Umsóknarfrestur er liðinn.
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
Umsóknarfrestur
Umsóknartímabilið er frá og með 11. september til fimmtudaginn 19. október kl. 13:00. Umsóknir sem berast eftir þann tíma koma ekki til álita.
Umsóknir
Umsækjandi er beðinn um að velja annaðhvort eyðublað I eða II eftir eðli verkefnisins.
I - Þjónusta/aðstaða á ferðamannastað eða ferðamannaleið
Um er að ræða:
Verkefni á stað, sem ekki er nú þegar skilgreindur sem ferðamannastaður en viðkomandi hefur áhuga að gera hann að slíkum - ný uppbygging.
Nýja þjónustu eða aðstöðu á þegar skilgreindum ferðamannastað. Framkvæmdin mun auka afköst staðarins/svæðisins og/eða tengist öryggi eða náttúruvernd.
II - Úrbætur vegna náttúruverndar og/eða öryggis á ferðamannastað eða ferðamannaleið
Um er að ræða:
Verkefni þar sem verið er að bæta eða lagfæra núverandi aðstöðu á ferðamannastað sem tengist öryggi eða náttúruvernd.
Aukin afköst við móttöku ferðamanna en þjónustustig er ekki hækkað. Ef um skipulags- og/eða byggingarleyfisskylda framkvæmd er að ræða, þá þarf að velja I – (Ný) þjónusta/aðstaða á ferðamannastað / ferðamannaleið.
Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:
Öryggi ferðamanna.
Náttúruvernd og uppbyggingu.
Viðhaldi og verndun mannvirkja og náttúru.
Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda. Fyrirhuguðu verkefni skal í umsókn lýst svo skilmerkilega að mögulegt sé að meta styrkhæfi þess.
Athugið að innskráningartími í umsóknarkerfinu eru 45 mínútur frá því að smellt er á "Vista og áfram" hnappinn. Eftir það þarf umsækjandi að skrá sig inn aftur. Við mælum því eindregið með því að smella á "Vista og áfram" hnappinn reglulega til þess að umsækjandi haldast innskráður.
Eftir að umsókn er send inn birtist valmöguleikinn Sækja öll gögn umsóknar á pdf. Við mælum eindregið með að umsækjandi nýti sér þennan valkost og visti gögnin hjá sér.
Þjónustuaðili
Ferðamálastofa